Skoðið vefinn í Internet Explorer vafra. Vefurinn er afmyndaður 
útlitslega séð í t.d. Firefox og Safari vafra
   

    ..:  Fjölmenningarvefur barna  :..

           © 2002 Anna Guðrún Júlíusdóttir        Höfundarréttur       Hugmyndin        Verðlaunavefur 2003 og 2006          Stuðningsaðilar               Heimildir        























 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


júní 2010.

Nú eru samtals 23 lönd frá öllum heimsálfum á Fjölmenningarvef barna.
Við bætum  6 nýjum löndum á vefinn í sumar.

 

Í vandræðum með vefinn, hafið samband við höfund og vefara: Anna Guðrún í gsm 8454569 eða e-mail
anna-gudrun@hotmail.com. Allar ábendingar eru vel þegnar.
    Á dögunum fékk 
    Fjölmenningarvefur barna
    viðurkenningu frá
    Alþjóðahúsinu.

Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti séra Miyako Þórðarsyni, Önnu Guðrúnu Júlíusdóttur og Morgunblaðinu viðurkenningu Alþjóðahúss ,,Vel að verki staðið” fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi við athöfn í Alþjóðahúsinu í dag, 29. janúar 2006.

Viðurkennningin, sem nú er veitt í fjórða skipti, þjónar þeim tilgangi að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á landi í málefnum innflytjenda. Veittar voru viðurkenningar fyrir lofsverða frammistöðu í þremur flokkum; til einstaklings af íslensku bergi brotinn sem hefur lagt sitt af mörkum til innflytjenda á Íslandi, til einstaklings af erlendum uppruna sem hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins og til fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka fyrir framlag til málefna innflytjenda og fjölmenningarsamfélagsins, að því er segir á vef Alþjóðahússins.

Anna Guðrún Júlíusdóttir er kennari við Breiðholtsskóla í Reykjavík. Hún fær viðurkenningu Alþjóðahússins fyrir uppsetningu og vinnu við Fjölmenningarvef barna, sem var settur upp árið 2002. Síðan þá hefur Anna Guðrún unnið að stöðugu viðhaldi og endurbótum á vefsíðunni, ávallt í sínum frítíma, enda hefur vinna við vefinn ekki verið hluti af starfi hennar sem kennari, þó að efni vefsins sé tengt kennslunni. Þetta hefur því verið hugsjónastarf frá upphafi hjá Önnu Guðrúnu.

Hugmyndin að Fjölmenningarvef barna varð til haustið 2000 þegar móttökudeildin í Breiðholtsskóla var opnuð. Vefurinn byggir á börnum sem hafa flutt með foreldrum sínum til Íslands víða að úr heiminum og hafa stundað nám í móttökudeildinni í Breiðholtsskóla. Þau taka þátt í því að búa til síðu um sitt heimaland og þannig bætast við nýjar síður eftir því sem þjóðernum fjölgar.

Vinnan að vefnum er mikilvæg fyrir nemendur til að viðhalda tengslum við gamla landið sitt, menninguna og tungumálið. Hún gerir þau líka stolt af bakgrunni sínum og hjálpar þeim að finnast þau hafa eitthvað mikilvægt fram að færa í nýja samfélaginu. Á þann hátt nýtist vefurinn öllum börnum á Íslandi sem koma frá þessum löndum, kennurum og áhugafólki um barnamenningu víða um heim.

Auk upplýsinga um heimalönd barnanna úr Breiðholtsskóla má finna á síðunni efni sem nýtist í íslenskukennslu, mikið af vefslóðum á mörgum tungumálum sem nýtast í kennslu raungreina, meðal annars, bæði í skólanum og á heimilum. Þar eru tenglar á þýðingarvélar sem geta hjálpað börnum við nám og aðstoðað við samskipti kennara og nemenda. Auk þess eru tenglar á mikinn fjölda barnabóka á yfir hundrað tungumálum og fræðsluefni um menningaráfall á nokkrum tungumálum svo eitthvað sé nefnt. Á aðalsíðum allra landanna eru tenglar á vefsíður dagblaða, útvarps og veðurfrétta, vefsíður um tísku, tónlist, listir, mataruppskriftir, íþróttir og dýralíf annað hvort á viðkomandi þjóðtungu eða ensku.

 

 

 

 

 

Íslenskir orðabankar
Skáldverk íslenskra rithöfunda á ýmsum tungumálum.
Námsvefir á 9 tungumálum ætlað
börnum og kennurum
Þýðingarvélar
á mörgum tungumálum
International
Tongue Twisters
Europian kids songs
Children's Library
34 languages
International Children's Digital Library
FREE BOOKS
108 languages
Culture shock enska
Kulturchok danska

Vefari, höfundur útlits, texta og val mynda:
Anna Guðrún Júlíusdóttir  
Aðstoðarmenn:
Auður Viðarsdóttir
Egill Viðarsson
Viðar Hreinsson