......:  Fjölmenningarvefurinn  :......
 

 
                     ©Anna Guðrún Júlíusdóttir  2002         Höfundarréttur      Hugmyndin   Verðlaunavefur 2003        Stuðningsaðilar    Heimildir  




















 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hugmyndin að Fjölmenningarvefnum varð til haustið 2000 þegar móttökudeildin í Breiðholtsskóla var opnuð. Vefurinn byggir á börnum sem flytja með foreldrum sínum víða að úr heiminum til að búa á Íslandi og hafa stundað nám í móttökudeildinni í Breiðholtsskóla. Þannig bætast við nýjar síður eftir því sem þjóðernum fjölgar. 

Vefurinn  auðveldar nemendunum að halda tengslum við gamla landið sitt, menningu og tungumál. Einnig miðla nemendur upplýsingum frá sínu menningarsvæði á vefinn.

Vefurinn er upplýsingaveita fyrir alla sem vinna með útlenskum börnum.

Til hægri eru vefsíður á ýmsum tungumálum með námsefni og  fróðleik, þar er m.a. fjallað um menningaráfall á nokkrum tungumálum.

Til vinstri er löndum raðað inn eftir heimsálfum. Hvert land hefur heimasíðu. Innan hvers lands eru einkasvæði  nemenda með myndum af heimaslóðunum sem þeir velja sjálfir.  Þar er einnig síða sem heitir Fróðleikur, einskonar fréttasíða.
 Á aðalsíðum allra landanna eru linkar á vefsíður dagblaða, útvarps og veðurfrétta, vefsíður um tísku, tónlist, listir, mataruppskriftir, íþróttir og dýralíf annaðhvort á viðkomandi þjóðtungu eða ensku.
Efni vefsins ætti að gagnast öllum sem hafa áhuga á öðrum þjóðum. Mikið er af myndum sem nýta má sem námsefni í íslenskukennslu. Mataruppskriftir frá ýmsum þjóðum eru kynntar á íslensku, ensku og mörgum öðrum tungumálum.
Fjölmenningarvefurinn er lifandi vefur í stöðugri þróun og tekur mið af reynsluheimi  nemendanna sem koma í deildina.
 

Vefslóðir á 8 tungumálum ætlað
börnum og kennurum
Þýðingarvélar
á mörgum tungumálum
International
Tongue Twisters
Europian kids songs
Children's Library
34 languages
International Children's Digital Library
FREE BOOKS
108 languages
Culture shock enska
Kulturchok danska

Höfundur texta og útlits:
Anna Guðrún Júlíusdóttir  
Yfirlestur og þýðingar:
Viðar Hreinsson

Vefurinn er í þróun og  útlit mun breytast á næstu mánuðum. Hér fyrir ofan verða síður með efni á ýmsum tungumálum.

Frá 11. janúar  2003 til 1. ágúst 2004 hefur vefurinn fengið um 18000 heimsóknir.